Smá áminning kippti tveimur fréttum af mbl 2001

Viðskipti | mbl.is | 20.3.2001 | 16:39

Rætur þenslunnar liggja í ófullnægjandi aðhaldi í hagstjórn

Þjóðhagsstofnun segir, að brýnasta verkefni hagstjórnar á næstunni sé að draga úr viðskiptahallanum með því að koma á betra samræmi milli þjóðarútgjalda og þjóðartekna. Fram kemur í ritinu Þjóðarbúskapurinn, sem stofnunin birti í dag, að þegar litið sé um öxl sé ljóst að aðhaldsstig efnahagsstefnunnar hafi verið ófullnægjandi á árunum 1998 og 1999 og þar sé því að finna rætur eftirspurnarþenslunnar.

Þjóðhagsstofnun segir að viðskiptahallinn sé nú um 10% af landsframleiðslu sem sé meiri halli en hafi áður verið hér á landi við sambærilegar aðstæður. Þegar mikill halli hafi myndast hafi það jafnan stafað af óvæntri lækkun útflutningstekna eða rýrnun viðskiptakjara en nú stafi hann nær eingöngu af innlendri eftirspurnarþenslu. Gífurleg útlánaaukning, slaki í hagstjórn, einkum 1998 og 1999, og almennar launahækkanir umfram launabreytingar í helstu viðskiptalöndum hafi viðhaldið uppgangi og eftirspurn í efnahagslífinu. Andlagið sé hins vegar mikill viðskiptahalli og erlend lántaka bankakerfisins.

„Svona mikill halli fær ekki staðist til lengdar og gerir efnahagslífið viðkvæmara fyrir breytingum í ytri aðstæðum," segir Þjóðhagsstofnun.

Forsætisráðherra ætlar að leggja Þjóðhagsstofnun niður

Innlent | mbl.is | 28.3.2001 | 22:48

Davíð Oddsson forsætisráðherra ætlar að leggja Þjóðhagsstofnun niður en hafnar því að ástæðan sé gagnrýni stofnunarinnar á efnahagsstjórnunina. Þórði Friðjónssyni, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, sárnar þessi ætlan og segir að vegið sé að fagmennsku starfsfólks. Fram kom í fréttum RÚV að verkefni Þjóðhagsstofnunar yrðu færð til Seðlabankans og Hagstofunnar.

Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir að gagnrýni forsætisráðherra á störf stofnunarinnar undanfarið hafi verið ósanngjörn og henni sé illa tekið á stofnuninni. Þjóðhagsstofnun sinnir samkvæmt lögum færslu þjóðhagsreikninga, hún vinnur þjóðhagsspár og yfirlitsskýrslur um rekstur þjóðarbúsins og lætur þingmönnum, ráðherrum og aðilum vinnumarkaðarins í té upplýsingar og skýrslur um efnahagsmál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skafti Elíasson

Höfundur

Skafti Elíasson
Skafti Elíasson
34 ára ísfirðingur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • gaza carrtoons9
  • ...ons9_768375
  • gaza carrtoons9
  • skútumyndir 007
  • Expressions 10

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1152

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband