16.3.2008 | 21:45
Ímynd vestfjarða
Maður getur ekki annað en velt fyrir sér hvort vestfirðingum er betur borgið með að kvarta og kveina við yfirvöld yfir ýmsustu hlutum eins og td. Slæma vegi og minnkandi þorsk kvóta, fækkandi atvinnutækifærum. Eftir að hafa spáð í þetta þá er ég á þeirri skoðun að það sem yfirvöld eiga að vera með á hreinu eru vegirnir heilbrigðisþjónustan og að hafa almennilega menntastofnanir hjá okkur en allt annað er undir okkur komið. Ég tel að allt kvabb í okkur vestfirðingum utan þess ofangreinda erum við að skaða okkur sjálf. Ef við tölum niður svæðið erum við að fæla frá okkur fólk sem langar etv að flytja hingað vestur, við verðum að leggja áherslu á þá hluti sem gera þetta svæði frábært og tíunda þær ástæður sem við höfum fyrir því að búa hér sjálf. Ísland hefur ekki farið varhluta af því að vera með lélega ímynd en fjármálageiri íslendinga hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum að hluta til vegna þess að við höfum kynnt okkur illa, þetta á líka við okkur vestfirðinga en mér er spurn, hverjum langar að flytja á stað sem það eina sem heyrist frá er snjóflóð skriðuföll uppsagnir atvinnuleysi afþreyingarleysi ?? Já ég held að það þurfi að koma upp ímyndarnefnd en þar er tekið á þesum kynningarvandamálum sem við stöndum frammi fyrir. Vestfirðingar eiga setja sér upp fastmótaða stefnu um í hvaða röð við viljum haga vegakerfi okkar hvar göng eiga að koma, hvaða þjónustu við ætlum að bjóða uppá og hvernig við ætlum að byggja þetta svæði en ekki hlaupa eins og hundar eftir beini á eftir öllu sem býðst, það þýðir ekki að búa til störf hér ef enginn vill búa hér. Málið er einfaldlega það að hér á ísafirði er frábært að búa því hér er skemmtilegt menningarlíf, fallegt umhverfi, þægilegur andi yfir svæðinu svo ekki sé sleppt að hér býr frábært fólk.
Um bloggið
Skafti Elíasson
Færsluflokkar
Tenglar
Allskonar
- Eyrarkláfur Fá hugmynd að veruleika
Tenglar
- Mr Bubba Godbright the one boybearsson
- Hálfdán B. Hálfdánarson
- Schmari von karlstadt Frændi og vinur
- Stubburinn minn
- Stóra stelpan mín
- Stóri strákurinn minn
- Konan mín
Bloggvinir
- vestfirdingurinn
- malacai
- babuska
- polli
- asthildurcesil
- vikari
- bjorgmundur
- bogi
- gattin
- eddaagn
- eyvi
- sveitaorar
- gunnarpetur
- gussi
- handsprengja
- maple123
- don
- johnnybravo
- jonatli
- prakkarinn
- photo
- lauola
- lindape
- olinathorv
- omarjonsson
- stebbifr
- lehamzdr
- tryggvienator
- vestfirdir
- villithor
- tolliagustar
- hugsun
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jamm ég er sammála, þess vegna segi ég við segjum okkur úr lögum við Ísland og stofnum fríríkið Vestfirðir, við eigum þvílíkt góða möguleika á því að komast af og eflast.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2008 kl. 23:02
Vestfirðingar þyrftu þá að kjósa um fríríkið.
Skafti Elíasson, 16.3.2008 kl. 23:08
Oftlega stungið upp á því að taka þurfi upp þráðinn aftur þar sem að tröllskessurnar skildu við hann á sínum tíma. Með nútíma jarðvegsvinnuverkfærum er þetta yfirstíganlegt & vinna má í dagsbirtu líka.
Steingrímur Helgason, 16.3.2008 kl. 23:15
Einmitt.
Þurfum bara frið fyrir ofríki valdhafanna fyrir sunnan og við förum aftur að draga fisk að landi án afskipta auðvaldsins og valdasjúkra einstaklinga í ráðstjórnarhöllum Reykjavíkur.
Ef við höfum fisk þá getum við borað göng, lagt vegi og byggt upp menntastofnannir eins og við viljum hafa þær.
Níels A. Ársælsson., 16.3.2008 kl. 23:45
það þyrfti að auðvelda fólki sem langar að flytja heim einhvernveginn. Ég veit samt ekki til þess að það sé atvinnuleysi hér.
Skafti Elíasson, 18.3.2008 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.