Slóðinn.......og samleiðin við þá að handan

Ég brá mér í smá ferðalag til að kíkja á vini mína hinumegin á kjálkanum þ.e Patró og Bíldó.  Ég á bara ekki nógu mörg orð til þess að lýsa ferðalaginu frá Þingeyri og yfir Hrafnseyrar og Dynjandaheiði en þarna er slóðinn, brattur mjór holóttur og það er hætta á því að lenda í snjóflóði á leiðinni og að verða fyrir grjótfalli en það er líka hægt að sjóbaðaðann bílinn sinn á leiðinni, mestmegnis af leiðinn er maður ekki í símasambandi, alla leiðina var ég að hugsa hvort ég væri kominn aftur í tímann og ég væri bara á farartæki úr framtíðinni því þarna passaði klárlega bara við hestavagn,, en nú er ég komin fram úr mér.  Það var gaman að koma til Patreksfjörð og Bíldudals en guð veit að þetta eru fallegir staðir.  Þegar ég hugðist fara heim u.þ.b 3stundum síðar var búið að loka Hrafnseyrarheiði, mér fannst það hálf spaugilegt vegna þess að deginum áður hafði ég snúið við úr tilraun minni við að komast yfir þennan dularfulla slóða í átt til Patró. 

 

Baldur rokkar feitt

Uppúr þessu gerði ég mér bara ferð til Reykjavíkur og prófaði að ferðast með Baldri en með honum hef ég aldrei farið áður, ég verð að segja að það var frábært að fara með ferjunni en þar gat ég slakað á fengið mér borgara og horft á Titanic ! hvernig er hægt að hafa það betra, koma svo saddur og úthvíldur úr í Stykkishólmi.

 

“I don´t need your civil war”

 Eitt vakti athygli mína um borð í Baldri það voru náttúrulega fólk frá Patró, Tálknó og Bíldó, ég hlustaði á tvo menn tala saman úr nokkra borða fjarlægð en þeir töluðu um hvað ísfirðingar hefðu lítinn áhuga á því að leiðina vestur fyrir og hvað þeir ættu enga samleið með fólkinu að norðan, ég var svolítið hissa að heyra þetta því að við norðanmenn myndum svo sannarlega nota okkur leiðina vestur fyrir ef hún væri bara fyrir hendi en við höfum jú slóðann sem ég lýsti hér að ofan.  Rexað og pexað hver er að fá göng fyrir hvern sunnanmenn segja að norðanmenn segi að göngin séu fyrir sunnanmenn svo þeir komist norður o.s.frv.  Ég lít á þessi göng sem mikilvægt skref fyrir okkur öll þ.e okkur að komast þessa leið til rvk nýta okkur þann frábæra kost Baldur, kaupa þjónustu að sunnan og selja þangað þjónustu, Efla ferðaþjónustu byggðana í sameiningu, en ég get talað um kosti þessarar tengingar í heilann dag án þess að hiksta.  Ég veit að ef ég hefði talað við þessa herramenn í Baldri þá hefði ég fengið þá til að skipta um skoðun á okkur norðanmönnum, en ég veit að flestir sunnanmenn hugsa ekki svona.  Þetta var farið að hljóma eins og handrit úr amerískri frelsis stríðs mynd um norðan og sunnan menn ég segi bara eins og Axl Rose hér að ofan.

 

Leiðin

 Við eigum ekki að einblína á eina leið til rvk heldur eigum við bæði að fara undir kollafjörð og losna við heiðarnar til rvk.  Einnig eigum við að tengja okkur við Suðurfirðina ekki bara til þess að fá leiðina til reykjavíkur heldur einfaldlega því að við eigum að vera tengd þeim, þetta á að vera eitt svæði, við þurfum á því að halda að þetta sé eitt svæði !. Nú siglum við bara samfélags skipinu okkar á að tengja okkur saman og komum með tillögur hvernig það er hægt (fjárhagslega) ef að við fáum þetta ekki frá ríkisstjórn vorri.  Ég heyrði t.d hugmynd þegar ég var á Patró um að það ætti að gera göng á ská upp á Dynjandaheiði og skella þar rörum í til þess að virkja vatn sem þar er uppá....er ekki bara málið að skoða hvernig við ætlum að gera þetta og svo að sjá hvort við fáum ekki einhverjar krónur í þetta frá ríkinu þó að við fjárfestum sjálf í þessu að hluta til,,? Ég bara spyr.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég var einmitt á fundi hjá Frjálslynda flokknum í dag, þar sem rætt var um að þrýsta á að laga leiðina milli norður og suður svæðisins, með dýrafjarðargöngum og til að byrja með uppbyggðum vegi yfir Dynjandisheiði, en síðar með göngum.  þar kom fram mikill áhugi og einlægur vilji til að að laga vegina sem fyrst til að tengja norður og suður svæðið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2007 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skafti Elíasson

Höfundur

Skafti Elíasson
Skafti Elíasson
34 ára ísfirðingur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • gaza carrtoons9
  • ...ons9_768375
  • gaza carrtoons9
  • skútumyndir 007
  • Expressions 10

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1222

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband