Skemmdarvargar

Þetta er allgerlega óþolandi þegar skemmdarvargar eru að skemma fyrir vinnandi fólki.  Það er  ekki  við verktakann að sakast ef menn eru einhvað ósáttir við verkið sem hann er að vinna.

mbl.is Skemmdarverk unnin á vinnuvélum í Helgafellshverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já sammála sorglegt þegar fólk hagar sér svona.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.5.2007 kl. 21:47

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ég er algjörlega sammála því að svona háttarlag er óþolandi og þekkt leið að láta það bitna á verktökunum ef fólk er á móti framkvæmdum. Ég hef verið að lesa það sem fólk skrifar um málið í kvosinni og langar mig til að nota tækifærið og koma hinni hliðinni á framfæri, en ég þekki það áægtlega þar sem ég sit í bæjarstjórn og hef unnið að málinu.

Ég vil byrja á að taka það fram að þetta lagnaskurðamál tengist lögnum frá hverfinu sem senn rís á Helgafellstúninu. Þessar lagnir þurfa að koma hvort sem tengibrautin verður að veruleika eða ekki og er sú framkvæmd ekki háð deiliskipulaginu.

Ég vil líka nefna nokkra punkta um framkvæmdirnar fyrir ofan Álafosskvosina. Í skipulagmálum gilda lög sem bæjaryfirvöldum er gert að lúta og það hefur vissulega verið gert í þessu máli sem og haft samráð við íbúana. Bæði  Helgafellshverfið og tengibrautin hafa verið á aðalskipulagi í um aldarfjórðung. Það hefur að mínu mati  verið vandað til verka á undirbúningstímanum m.t.t. mögulegra umhverfisáhrifa, hámarkshraði lækkaður á tengibrautinni, brautin felld betur inn í landið og fjær Álfosskvosinnin en fyrra skipulag gerði ráð fyrir. Mosfellsbær kannaði einnig lögum samkvæmt hvort framkvæmdin væri háð mati á umhverfisáhrifum. Bæjaryfirvöld hafa í öllu fylgt leikreglum skipulagsmála og gildandi laga og stoppaði málið eftir að bæði Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra höfðu komist að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Sú niðurstaða var kærð til úrskurðarnefndar skipulags og byggingamála sem komst að þeirri niðurstöðu að ákæruatriði ættu ekki við, en taldi að samkvæmt nýjum lögum frá 2006 ætti að auglýsa deiliskipulagið með umhverfisskýrslu. Því var deiliskipulagið og framkvæmdaleyfið að 500 metra kafla tengibrautarinnar dregið til baka. Hér er hægt að sjá myndir af fyrirhugaðri tengibraut.

Það er svo annað mál hvort fók vill láta byggja í nágrenni við sig og sérstaklega þar sem þetta svæði hefur verið landbúnaðarsvæði hingað til. En nú er komið að uppbyggingu á þessum fallega stað sem er að mínu mati eðlileg þróun byggðar, en ég tel að yfirvöld á hverjum stað verði að leita leiða til að lágmarka rask og óþægindi þeirra sem fyrir eru, en í þessu tilfelli þá verður það vart gert með því að færa veginn inn í annað íbúahverfi fjær kvosinni þar sem kaupa þarf upp fjölmörg hús til að koma tengingunni fyrir.

Nú er verið að ljúka við umhverfisskýrsluna sem auglýst verður með deiliskipulaginu eins og nýju lögin um umhverfismat áætlana gera ráð fyrir og hafa þá íbúar á svæðinu enn á ný tækifæri til að koma athugasemdum sínum á framfæri. Hér er samantekt um málið og m.a. um kynningar og samráðsferlið.

Herdís Sigurjónsdóttir, 17.5.2007 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skafti Elíasson

Höfundur

Skafti Elíasson
Skafti Elíasson
34 ára ísfirðingur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • gaza carrtoons9
  • ...ons9_768375
  • gaza carrtoons9
  • skútumyndir 007
  • Expressions 10

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1222

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband